17.12.04

bara nýtt útlit

nýtt útlit. Var orðin ansi leið á hinu gamla svo ég ákvað að hressa aðeins uppá síðuna með þessu snildar útliti ;)

30.11.04

ég er veik...

leiðinlegt, leiðinlegt, leiðinlegt...að vera veikur....ojjojjjojjj, en svona er þetta bara og ég get ekkert gert, ömurlegt, en nú held ég áfram að láta mér leiðast...bæ

15.11.04

jólin, jólin, allsstaðar...

jamms,jólaskapið allveg að fara með mig, skrapp áðan á http://jol.is , og núna er bara ekkert að gera í bili g2g

7.11.04

jamms, bara fullt að gera or not....

já ekkert að gera og ég bara er að láta mér leiðast, er það ekki spennandi? En já, humm ég og Anna gerðum snið að hinum frábæra kjól í gær, það var nú bara ekkert mál (hósthóst)....

4.11.04

Stíllinn bara...

Jájá, ég er ekkert smá stolt af Önnunni minni, hún hannaði kjóllinn sem tekur þátt í stíl 2004, hehe (fyrir þá sem ekki vita hvað stíll er er það hönnunarkeppni, maður hannar og saumar kjól, greiðslu og förðun). Ég, Ingunn, Hadda erum með henni í þessu, ég er módel, Ingunn sér um förðun og Hadda hjálpar til með allt bara. Svo að núna er bara að sníða, sauma, farða, og greiða á næstu 2 vikum, úbbbúbbúbbb. Jájá, annars er ekkert að gerast meira núna, nema Halloween ball á morgun og ég hef nú bara eingan búning, ætli ég verði ekki bara í einhverju svörtu bara....

1.11.04

Bara aftur í skúlann...

back to school, jájá það er fínt bara þó ég hafi haft það nú ansi gott í verkfalli. En váa hvað það er langt síðan ég hef bloggað, hehe. Jájá samt er ekkert sem ég hef nú merkilegt gert. Brósi farinn til Svíþjóðar aftur, obbobbobb, en jájá hann kemur nú aftur um jólinn. Ohh ég er komin í svo mikið jólaskap að það er ekki eðlilegt:D Skrapp svo í smáralindina í gær og keypti mér bol, og geggjaða úlpu hehe, jájá, mikið að gerast þessa dagana ehe or not. Já nóg í bili...

23.10.04

Ohh kva ég er leið á þessu...

Vá hvað ég er leið á þessu útliti, bara ojbarasta!!!!!

Leiðist :'(

Ohh, það eru allir einhversstaðar annarstaðar, bull. Leiðist ekkert smá mikið. Þannig að er bara núna eitthvað að bæta síðuna;)

21.10.04

Ný klipping...

Já klukkan er núna hálf 11 um morgun og ég var að koma úr klippingu það er sko geggjað flott. En jæja, hef nú ekkert að tala um hér...svo bara enjoy the day....

20.10.04

ohh, hvað ég er þreytt...

ég er svooo þreytt, er líka búin að vera á fullu í allan dag, úffopúff. Byrjaði á því að vakna klukkan hálf fimm, obbbobbobb ;) en sofnaði svo fljótlega aftur og vaknaði klukkan 7. Var svo sótt klukkan 10 mín. yfir 8 til að passa stelpur sem eru sex og átta ára. Var svo skutlað beint eftir það semsagt klukkan kortér í eitt upp í tónlistarskóla þar sem ég hímdi í klukkutíma og hlustaði á fyrirlestra um þagnir svo kom ég heim skellti mér fyrir framan tölvuna og er bara ekkert buin að hreyfa mig þaðan, tók smá rispu í Sims og sonna, svo tekur við samspil klukkan sex, og eldamennska!!! Ojj, er nú ekki í stuði fyrir það eða kannski eldamennskuna því að það verður nú bara hammari (hamborgari) og franskar jömmí, hehe.

14.10.04

Nýjar DIESEL buxur bara....

já skellti mér í kringluna og fann líka þessar fínu DIESEL buxur (hehe). En annars ekkert að frétta...